Aðalvalmynd

Teljari

Auglýsing

Nýjast á B2.is

Gleðileg jól og farsælt nýtt komandi árÁsdís Kjartansdóttir

Búið að vera viðburðaríkt ár. Hef ferðast óvenju mikið, 3 heimsálfur á einu ári, ekki slæmt það. Fór vestur á aðfangadagsmorgun og kom í bæinn aftur annan í jólum. Stutt jól fyrir vestan. Færðin í bæinn soldið leiðinleg en ég var svo heppin að fá fjallabíl lánaðan þannig að ég var ekki í miklum vandræðum. Er svo að vinna á gamlárs frá fimm til tíu. Næ allavega skaupinu! Enginn búinn að fara yfir prófin, þessir kennarar greinilega í jólafríi líka.

Gleðileg jól og hafið það gott um áramótin :)

Senn koma jólinÁsdís Kjartansdóttir

Komin heim frá Ameríkunni. Þar sem allt er risa stórt og fólkið yfirborðskennt og smeðjulegt. Kannski ekki allir en flestir sem ég hitti.
Keypti að sjálfsögðu frekar mikið, en þó ekki eins mikið og Arna ;)
Fórum í Outlett fyrir utan Minneapolis sem var mjög hagstætt, fylltum mini-vaninn sem við leigðum af pokum. Hann var án gríns troðinn, Arna og Valdi áttu í erfiðleikum með að koma sér fyrir þar. Annars var ferðin bara frábær, sómalski leigubílstjórinn sem ætti að vera uppistandari var geðveikt fyndinn, sem og þýska konan sem afgreiddi okkur í nammibúðinni. Hún ákvað að tala bara við okkur þýsku eftir einhvern misskilning. Mjög hressandi. Sædýrasafnið líka skemmtilegt, ásamt öllum barnatækjunum sem við tjekkuðum á, draugahúsinu og fleiru skemmtilegu. Að ógleymdum Nascar herminum. Svo er bara próf framundan og áður en maður veit af eru komin jól (og mastercard reikningur
Skömmustulegur).

Að ganga í svefniÁsdís Kjartansdóttir

Það hefur stundum komið fyrir mig. Í nótt t.d. vaknaði ég þegar ég var komin hálfa leið upp á koll í herberginu mínu undir loftljósinu. Þá var ég búin að taka tölvuna af kollinum (sem var við rúmið mitt) og setja hana á skrifborðið og færa kollinn undir ljósið. Hvað í ósköpunum ég ætlaði að gera upp á kollinn veit ég ekki, en ég er fegin að ég vaknaði áður en ég varð mér að voða.


Góða helgi Svalur

Ég ætlaði að vera ógisslega dugleg að læra í dag....Ásdís Kjartansdóttir

en svo bregðast krosstré sem önnur tré.

Ég ákvað að lesa blogg hjá ókunnugu fólki í staðinn. Sterkur leikur.

Aaaajj hvað það er örugglega gott að vera kötturÁsdís Kjartansdóttir



Ég vissi það!!Ásdís Kjartansdóttir

Óhollt fyrir hjartað að fara snemma á fætur

Það eru gömul vísdómsorð að morgunstund gefi gull í mund, en ný japönsk rannsókn bendir til að þeim sem fara snemma á fætur sé hættara við hjartakvillum. Leiddi rannsóknin í ljós tengsl á milli fótaferðatíma og hjarta- og æðasjúkdóma.

Rúmlega þrjú þúsund hraustir einstaklingar á aldrinum 23-90 ára tóku þátt í rannsókninni. Þeim sem fóru snemma á fætur var hættara við háþrýstingi og heilablóðfalli.

Í niðurstöðunum er aftur á móti tekið fram, að flestir þeirra sem fóru snemma á fætur hafi verið eldra fólk.

Ógeðis veðurÁsdís Kjartansdóttir

Ég var búin að gleyma því hvað það getur verið leiðinlegt veður á Íslandi. Hver tímir að splæsa á mig utanlandsferð?
Helst þangað

Dugnaðurinn í botniÁsdís Kjartansdóttir

Ég er búin að vera í dugnaðarkasti í dag og í gær. Málaði gluggalistana inní stærra svefnherberginu í dag og hófst svo handa við að þrífa það og flytja smá dót yfir. Svo áður en ég vissi af var ég bara búin að koma mér nánast alveg fyrir í herberginu og setja föt inní í HUGE fataskápinn sem er þar inni. Þá á ég bara eftir að láta ramma inn málverkin sem ég keypti í Tælandi og hengja þau uppá vegg. Já og fara í IKEA og kaupa mér náttborð og eitthvað annað ótrúlega sniðugt sem fæst í IKEA.

Skellti mér í bíó í kvöld á Astrópíu með Gróu Björg kvikmyndarstjörnu, Eddu Maríu bmw bílstjóra og meistara Jakob. Gróa ákvað að gefa eiginhandaráritanir eftir sýninguna en fólk var ekki alveg að taka nógu vel í það. Hún fékk bara skrítin augngot og fliss. Enda var hennar ekki einu sinni getið á kredit listanum. Hvað heldur hún eiginlega að hún sé?

Nýnemakvöld á föstudaginn, skyldumæting fyrir mig þar sem ég er í stjórn. Svo er Ljósanótt í Reykjanesbæ á laugardaginn, það er víst búið að plata mig þangað. Alltaf verið að plata mig eitthvað. Að lokum er ég svo að fara að passa fyrir systur mína á sunnudagskvöldið. Fullskipuð dagskrá um helgina hjá mér sem sagt.

Anyways, ég er farin að sofa. Eða horfa á sjónvarpið. Eða halda áfram í tölvunni. Allavega eitthvað af ofantöldu.


Sumarið búiðÁsdís Kjartansdóttir

Eða svona hér um bil. Skólinn byrjar á morgun og ég hætt í 100% vinnunni. Sumarið bara búið að vera fínt, soldið djammað, soldið lært og soldið unnið. Ágætis blanda fyrir utan lærdóminn, ætla að reyna að sleppa við hann næsta sumar. Annars fann ég þessa rosa fínu mynd af mér síðan í afmæli Heiðrúnar og Gyðu í sumar, ég er alltaf svo dönnuð



Var einmitt í svipuðum gír á föstudagskvöldið þegar nokkrir verðandi og útskrifaðir líffræðingar hittust á Organ og drukku frá sér allt vit. Var svo að vinna í gærkveldi en fór "óvart" líka út á lífið þá. Vaktin í kvöld var því frekar erfið, mikið að gera og ég ótrúlega þreytt.

Fyrirlestur á morgun, best að fara að sofa.....

Undur og stórmerkiÁsdís Kjartansdóttir

Haldiði ekki bara að ég hafi ryksugað glerbrotin úr aftursætinu í bílnum mínum í kvöld. Þannig að næstu farþegar þurfa ekki að sitja á fínu, hvítu flíspeysunni til þess að slasa sig ekki!

Annars er ég bara á næturvakt, ekkert að gera og ég að misnota aðstöðu mína með því að henda í eina þvottavél. Þurfti bara nauðsynlega að eiga hrein föt á morgun. Vona að mér verði ekki sagt upp ef þetta fréttist.

Verslunarmannahelgin framundan, veðurspáin ekki eins slæm og áhorfðis. Vissi að maður ætti ekki að taka mark á rigningarspánni.
Síða 1 af 9

Bloggarar

Börnin

Ýmislegt